Archer IT

Sérfræðingar okkar vinna í sífellu við að auka kunnáttu sína á sviði netöryggis og taka þátt í fyrirlestrum, ráðstefnum og vefnámskeiðum.

Þeir vinna að mörgum háþróuðum verkefnum.

Þeir eiga í viðræðum og ráðfæra sig við leiðandi framleiðendur á tækjum og hugbúnaði.

Á þann hátt geta þeir:

greint mögulegar hættur í upplýsingakerfum,

hannað örugg upplýsingakerfi,

fjarlægt öryggisveikleika,

dregið úr afleiðingum mögulegra árása,

bætt öryggisstig tölvukerfis hjá viðskiptavini.

Með því að nýta margra ára reynslu og lausnir frá leiðandi framleiðendum geta þeir komið í veg fyrir atvik sem skapa hættu fyrir fyrirtækið.

Með stuðningi frá okkur munið þið geta fyrirséð og unnið á móti aðgerðum netþrjóta sem reyna að valda stofnuninni ykkar skaða.

Varnir eru innleiddar með erfiða tíma í huga. Þeir geta komið alveg fyrirvaralaust.

Það að ekki hefur komið til öryggisbrests hjá ykkur hingað til (eða þá að það hefur gerst en þið vitið ekki af því) þýðir ekki að það verði alltaf þannig. Tölfræðin sýnir að krítískt ástand er aðeins tímaspursmál.

En þið getið komið í veg fyrir það með viðeigandi vöktun á innviðum fyrirtækisins. Á þann hátt verðið þið betur undirbúin.

Og ef til þess kemur mun það ekki lama starfsemi fyrirtækisins. Við sjáum nefnilega um fjölþætta vernd kerfisins ykkar.

Við bjóðum upp á alhliða þjónustu
á sviði netöryggis

Ráðgjöf

Úttekt

Áætlun

Framkvæmd

Stjórnun

Fyrir hvert verk greinum við ítarlega þarfir viðskiptavinarins, stöðu hans og sérstöðu rekstursins. Á þeim grundvelli bjóðum við upp á tilteknar lausnir.

Þið getið því verið viss um að fá nákvæmlega það sem fyrirtækið ykkar þarf á að halda.